Ferill 231. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 234 — 231. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um úrræði fyrir börn með alvarlegan hegðunarvanda eða geðvanda.
Frá Evu Sjöfn Helgadóttur.
Hefur ráðuneytið unnið að því að koma á fót úrræði á vegum heilbrigðisyfirvalda þar sem börn með alvarlegan hegðunarvanda eða geðvanda geta hlotið þjónustu?
Skriflegt svar óskast.